Jöfn skipti í Frostaskjólinu 10. ágúst 2006 11:30 Guðmundur steinarsson Í strangri gæslu KR-inga. MYND/Villi
Þrettánda umferð Landsbankadeildarinnar hófst með skemmtilegum leik KR og Keflavíkur í gær en hann endaði með jafntefli, 2-2. Lykilmenn vantaði í lið Keflavíkur og var Hallgrímur Jónasson því kominn í miðvörðinn. Hjá KR var Sigþór Júlíusson kominn í byrjunarliðið en hann stóð sig vel í bakverðinum. Bæði lið hefðu líklega viljað fá öll stigin úr leiknum en þegar allt kemur til alls geta þetta talist sanngjörn úrslit í kaflaskiptum leik. Fyrsta marktilraunin kom strax á fyrstu mínútu en þá áttu KR-ingar aukaspyrnu sem þeir útfærðu skemmtilega og Björgólfur Takefusa skaut hárfínt framhjá markstönginni. Það voru þó Keflvíkingar sem byrjuðu leikinn betur og komust yfir á elleftu mínútu en þá átti Jónas Guðni Sævarsson langa sendingu fram, Dalibor Pauletic gleymdi sér í vörninni og Guðmundur Steinarsson var kominn einn á auðan sjó. Guðmundur gerði allt rétt og skot hans hafnaði í bláhorninu. Næstu mínútur þar á eftir voru eign Keflvíkinga og Jónas Guðni átti hörkuskot skömmu eftir markið en Kristján Finnbogason náði að verja í horn. Kristján var aftur á ferðinni á tuttugustu mínútu en þá varði hann skot Magnúsar Þorsteinssonar í stöng. Gestirnir höfðu yfirhöndina á miðjunni á upphafskafla leiksins en þeir Mario Cizmek og Kristinn Jóhannes Magnússon náðu þó betur saman eftir því sem á hálfleikinn leið og KR-ingum óx ásmegin. Skúli Jón Friðgeirsson sýndi í nokkur skipti skemmtileg tilþrif hjá KR í fyrri hálfleiknum og hann skaut yfir úr mjög góðu færi á 25. mínútu en fram að þeim tíma höfðu KR-ingar verið heldur líflausir. Grétar Hjartarson átti sendinguna á Skúla en tveimur mínútum síðar snerist dæmið við og Grétar náði að skora með skalla eftir undirbúning Skúla. Markið var langt frá því að vera fallegt en telur eins og hin en Grétar hefur farið illa með hin ótrúlegustu færi í síðustu leikjum og gat því farið að anda léttar eftir að hafa séð þennan bolta í netinu. Þegar um tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik féll Magnús Þorsteinsson innan teigs og fannst sterk lykt af vítaspyrnu en dómarinn Garðar Örn Hinriksson virtist handviss og var ekki lengi að gefa Magnúsi gult spjald fyrir leikaraskap. KR komst svo yfir á 65. mínútu og ekki var það af verri gerðinni. Sigmundur Kristjánsson átti frábæra fyrirgjöf og Björgólfur var ákveðinn innan teigs og skallaði í markið. Guðmundur Steinarsson átti hörkuskot rétt framhjá og hinum megin varKristinn nálægt því að skora en skallaði naumlega framhjá. Það var svo bjargvætturinn Þórarinn Brynjar Kristjánsson sem jafnaði í 2-2 beint úr aukaspyrnu og bjargaði stigi fyrir gestina en boltinn sveif yfir varnarvegginn og í nærhornið. Guðmundur Steinarsson var nálægt því að tryggja gestunum öll stigin en Kristján varði skot hans úr aukaspyrnu glæsilega og úrslitin því 2-2. „Það er allt í lagi að fá stig á KR-vellinum en mér fannst þó að við áttum að klára þetta. Maggi vildi fá vítaspyrnu, var kominn framhjá manninum þegar hann er rifinn niður og fær gult spjald. Það er náttúrlega fáránlegt,“ sagði Þórarinn Brynjar Kristjánsson Keflvíkingur eftir leik. Hann var þó þokkalega sáttur við stigið og sagðist ekki muna eftir því hvernig væri að tapa leik enda hefur Keflavík ekki tapað síðan í sjöundu umferð. „Við byrjuðum mun betur í þessum leik, erum með fljóta leikmenn og fáir geta stöðvað okkur þegar við látum boltann ganga. Við eigum ekki að vera að þruma boltanum fram, það hentar okkur ekki.“
Íþróttir Mest lesið Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Sport Fékk rautt spjald fyrir að pissa Fótbolti Vill eignast lið í hverri heimsálfu Fótbolti Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Körfubolti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Sport Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Enski boltinn Fyrstur til að skora fjögurra stiga körfu Körfubolti Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Íslenski boltinn „Við erum með YouTube-gaur að berjast við besta boxara sögunnar“ Sport Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: FH - Valur | Jafna Valsmenn að stigum með sigri Caitlin Clark þakkaði dómaranum fyrir tæknivilluna sína Hafa unnið alla leiki á móti Fram í heilan áratug Víkingur fær hvíld milli Evrópuleikjanna Henry hættir eftir silfrið Sjáðu mörkin úr fallslögunum og jafnteflinu fyrir norðan Jákvætt að aðstoðarþjálfarinn sé ekki á bekknum Kæra KR tekin fyrir á morgun Fyrstur til að skora fjögurra stiga körfu „Við erum með YouTube-gaur að berjast við besta boxara sögunnar“ Guardiola: Haaland líður betur en á sama tíma í fyrra Fóru illa að ráði sínu gegn Egyptum Conte baðst afsökunar: „Bráðnuðum eins og snjór í sól“ Þurftu að stækka klefann hjá Chelsea Þakkaði Drake fyrir að veðja á mótherja sinn Ólympíufari á yfirsnúningi Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Benni Gumm fann Grikkja fyrir Tindastólsliðið: „Tók sinn tíma“ Fengu að heyra það frá Ancelotti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Bronshetja Svía í bann fyrir mótmælin Fékk rautt spjald fyrir að pissa Dagskráin í dag: Sex bestu liðin í Bestu deildinni Vill eignast lið í hverri heimsálfu Dagur Árni í liði mótsins á EM Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ „Árbærinn er vaknaður“ Uppgjörið: HK - Fylkir 0-2 | Manni færri með afar mikilvægan sigur Sjá meira