Viðskipti innlent

LSR í 170. sæti í Evrópu

Ríkisstarfsmenn við störf  Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var í 170. sæti á lista IPE yfir stærstu lífeyrissjóði Evrópu á síðasta ári. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að síðustu ár hafi verið góð og útlitið er gott fyrir þetta ár.
Ríkisstarfsmenn við störf Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var í 170. sæti á lista IPE yfir stærstu lífeyrissjóði Evrópu á síðasta ári. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að síðustu ár hafi verið góð og útlitið er gott fyrir þetta ár.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, var í 170. sæti yfir stærstu lífeyrissjóði Evrópu um síðustu áramót samkvæmt úttekt Investment & Pensions Europe (IPE), fagtímarits um lífeyrissjóði. Nær samantektin til eitt þúsund stærstu lífeyrissjóða álfunnar.

Heildareignir LSR námu 227 milljörðum króna í árslok 2005 og var ávöxtun síðasta árs sú besta í sögu sjóðsins. Ætla má að LSR hafi hækkað um einhver sæti á lista IPE þar sem eignir sjóðsins jukust um þrjátíu milljarða á fyrri hluta ársins.

Síðustu þrjú ár hafa verið mjög góð og útlitið fyrir þetta ár er einnig gott, segir Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, og bendir á að sjóðurinn hafi vaxið hraðar en aðrir íslenskir lífeyrissjóðir á síðustu árum. Eignasamsetningin er dreifð þar sem rétt rúmur helmingur eigna er í innlendum skuldabréfum og restin í innlendum og erlendum hlutabréfum. Haukur segir að hækkun á fyrri hluta ársins stafi meðal annars af gengisþróun krónunnar.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) og Gildi lífeyrissjóður eru einnig ofarlega á lista IPE; LV í 269. sæti og Gildi einu sæti neðar. Eignir LV voru 191 milljarður króna sem er tíu milljörðum hærri fjárhæð en heildareignir Gildis.

Almenni lífeyrissjóðurinn sat í 445. sæti en alls komust sautján íslenskir lífeyrissjóðir inn á lista IPE. Margt bendir til þess að íslensku sjóðirnir hækki enn frekar á næstu árum, enda er mikil sjóðasöfnun í lífeyrissjóðakerfinu og stefnir í ágæta raunávöxtun á árinu ef marka má milliuppgjör lífeyrissjóðanna.

Stærsti lífeyrissjóður Evrópu er ABP í Hollandi með heildareignir upp á 186,9 milljarða evra í árslok. ABP er því 56 sinnum stærri en LSR. Norski ríkislífeyrissjóðurinn, sem að hluta til er gamli Olíusjóðurinn, kemur næstur og sænsku ríkislífeyrissjóðirnir AP Fonden sitja í þriðja sæti listans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×