Bíó og sjónvarp

Leikur ekki í Rush Hour

Belgíska hasarmyndahetjan ætlar ekki að leika í Rush Hour 3.
Belgíska hasarmyndahetjan ætlar ekki að leika í Rush Hour 3.

Belgíska buffið, Jean Claude Van Damme, hefur borið til baka orðróm um að hann muni leika vonda kallinn í grín-hasarmyndinni Rush Hour 3 á móti Jackie Chan og Chris Tucker.

Van Damme segist hafa verið að grínast með þetta á sínum tíma og spurði þá hvort það væri ekki sniðugt að hann yrði með í myndinni. „Ef ég myndi leika í grínmynd myndi ég ekki vilja leika í Rush Hour, heldur frekar mynd í líkingu við Lethal Weapon sem væri aðeins raunsærri,“ sagði Van Damme.

Rush Hour 3 gerist í París og er hún væntanleg á hvíta tjaldið næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.