Sport

Markús Máni í Val

Markús Máni er á leið heim
Markús Máni er á leið heim Mynd/Hari

Landsliðsmaðurinn Markús Máni Michaelsson hefur gert munnlegt samkomulag um að leika með Valsmönnum næstu þrjú árin. Þetta kom fram í kvöldfréttum NFS. Markús er Valsmaður í húð og hár, en hann hefur leikið með þýska liðinu Dusseldorf undanfarin tvö ár. Ljóst er að Markús Máni á eftir að styrkja lið Vals verulega á næstu leiktíð.

Valsmenn hafa verið duglegir við að styrkja sig að undanförnu og í dag gekk liðið frá samningi við línumanninn Gunnar Harðarson sem kemur úr Fram. Þá hefur samningur Óskars Bjarna Óskarssonar þjálfara verið framlengdur og félagið fékk örvhentu skyttuna Ernir Hrafn Arnarsson til liðs við sig frá Aftureldingu á dögunum svo að ljóst er að Hlíðarendapiltar ætla sér stóra hluti á komandi vetri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×