Viðskipti innlent

Eimskip rekur stærstu kæligeymslu í Kína

Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, við undirritun viljayfirlýsingarinnar í Kína.
Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, við undirritun viljayfirlýsingarinnar í Kína.
Eimskip og Qingdao Port Group hafa undirritað viljayfirlýsingu um rekstur á stærstu kæligeymslu í Kína, sem verður á Qingdao-höfninni, þriðju stærstu gámaflutningahöfn í Kína. Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu aðilarnir tveir í sameiningu byggja upp nútímalega kæligeymslu eftir evrópskum stöðlum.

Í tilkynningu frá Eimskipi rúmar geymslan 50.000 tonn og verður því stærsta einingakæligeymslan í Kína. Viljayfirlýsingin felur einnig í sér möguleika á stækkun geymslunnar um allt að 50.000 tonn til viðbótar.

Þá segir að ákveðið hafi verið að reisa kæligeymsluna í Qingdao vegna þess að höfnin er þekkt sem stærsta útflutningsstöð kæliflutningaskipa en hún hefur verið kölluð „höfn vonarinnar á 21. öldinni" og „milljón tonna höfnin". Qingdao-höfn er þriðja stærsta gámaflutningahöfnin í Kína en á þessu ári er áætlað að um 220 milljón tonn og 8 milljón gámaeiningar (TEUs) fari um hana. Fyrstu tíu mánuði þessa árs fóru um 315.000 kæligámaeiningar (reefer TEUs) um höfnina.

Baldur Guðnason forstjóri Eimskips, segir þetta mjög spennandi verkefni og styðji við núverandi starfsemi Eimskips í Kína. „Þetta er stór áfangi fyrir Eimskip og ekki síst fyrir Qingdao-höfn. Hingað til hefur flutningur hitastýrðra afurða í Kína mestmegnis farið fram á öðrum höfnum landsins en nú hefur Qingdao-höfn tækifæri til þess að verða stærsta dreifingarmiðstöð frystra og kældra afurða í Kína. Þetta er mikilvægur liður í þeirri sýn Eimskips að verða leiðandi aðili í hitastýrðum flutningum á heimsvísu en við höfum háleit markmið um nýtingu geymslunnar hvað varðar flutninga milli N-Ameríku og Asíu," segir hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×