Handbolti

Kóreumenn æfir yfir dómgæslu

Yoon segir að dómgæslan í handboltanum á Asíuleikunum sé farsi
Yoon segir að dómgæslan í handboltanum á Asíuleikunum sé farsi NordicPhotos/GettyImages

Fimmfaldir Asíumeistarar í handbolta, Suður-Kóreumenn, eru æfir yfir dómgæslunni í handboltakeppninni á leikunum að þessu sinni og náði gremja þeirra hámarki þegar liðið tapaði 40-28 fyrir Katar í undanúrslitum mótsins. Kóreumenn vilja meina að brögð séu í tafli.

Suður-Kórea hefur sigrað í handboltakeppninni á leikunum allar götur í síðan leikarnir voru haldnir í Seul árið 1986 en Yoon Kyung-Shin, handboltamaður ársins í heiminum árið 2001, segir að óþefur sé af sigri heimamanna.

"Ég er búinn að spila handbolta í meira en tvo áratugi og ég hef aldrei spilað annan eins leik, sem var eins og hann væri spilaður af börnum. Þessi leikur var íþróttinni til skammar," sagði Kóreumaðurinn. Dómarar leiksins voru frá Kúvæt og dæmdu þeir nokkur mörk af Suður-Kóreu og gáfu liðinu hvorki meira né minna en tíu tveggja mínútna brottvísanir og var því lið Kóreumanna skiljanlega ansi fáliðað lengst af leik.

Handknattleikssambandið í Suður-Kóreu hafði þá þegar sent inn formlegt mótmælabréf til asíska handknattleikssambandsins og Ólympíusambands Asíu vegna lélegrar dómgæslu í tapleik liðsins gegn Kúvæt á föstudag, en þar voru dómararnir einmitt frá Katar. Það verða Katar og Kúvæt sem spila til úrslita á leikunum.

Yoon hélt áfram; "Ég efast um að við hefðum unnið þennan leik þó við hefðum verið með tíu menn inni á vellinum. Þetta var eins og í lélegri bíómynd.

Þjálfari Katar vildi ekki taka undir þessar alvarlegu ásakanir Kóreumanna og hafði fyrst og fremst áhyggjur af leiknum við Kúvæta. Hann sagði Kóreumenn þó ekki barnanna besta þegar kæmi að drengilegum leik og minnti á að leikmenn Suður-Kóreu hefðu verið hrokafullir og neitað að bjóða andstæðingum sínum góðann daginn fyrir leik. "Við myndum aldrei hegða okkur svona," sagði þjálfarinn.

Þjálfari Suður-Kóreu mætti ekki á blaðamannafund eftir tapið í undanúrslitunum. 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×