Sport

Ísland vann þrenn verðlaun

Ísland vann til þrennra verðlauna á fyrsta degi Norðurlandamóts öldunga í frjálsum íþróttum sem hófst í Malmö í Svíþjóð í gær, ein gullverðlaun og tvö brons.

Árný Hreiðarsdóttir vann gullverðlaun þegar hún sigraði þrístökk kvenna 50 ára og eldri. Trausti Sveinsbjörnsson varð þriðji í 200 metra hlaupi 60 ára og eldri og Kristófer Jónasson varð þriðji í þrístökki sjötugra og eldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×