Sport

Viggó kátur með sína menn

Viggó Sigurðsson var heilt yfir sáttur við leikinn í dag
Viggó Sigurðsson var heilt yfir sáttur við leikinn í dag

Landsliðsþálfarinn Viggó Sigurðsson var kampakátur með sína menn í kvöld eftir að íslenska landsliðið bar sigurorð af Serbum í fyrsta leik á EM. Viggó var fyrst og fremst ánægður með leik liðsins í fyrri hálfleik, en sagðist hafa búist við grófum leik og sú hafi orðið raunin.

"Maður átti von á því að þetta yrðu dálítil slagsmál. Serbarnir eru nokkuð grófir, en fyrri hálfleikurinn var frábær hjá okkur og bæði vörn og markvarsla voru í góðu lagi. Við gerðum allt of mikið af mistökum í þeim síðari og hefðum geta kastað frá okkur sigrinum, en við héldum haus og það sýnir karakter," sagði Viggó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×