Sport

Jafnt hjá Íslendingum og Dönum

Snorri Steinn Guðjónsson var atkvæðamikill í íslenska liðinu í kvöld eins og í gær
Snorri Steinn Guðjónsson var atkvæðamikill í íslenska liðinu í kvöld eins og í gær

Íslendingar og Danir gerðu jafntefli 28-28 í leik sínum í C-riðli EM í Sviss í kvöld. Íslenska liðið fékk tækifæri til að gera út um leikinn í síðustu sókn leiksins en það tókst ekki og niðurstaðan því jafntefli. Íslenska liðið hafði frumkvæðið lengst af leik, en getur ef til vill vel við unað með jafnteflið þar sem liðið var án Ólafs Stefánssonar og fékk aðeins eitt mark frá Guðjóni Val Sigurðssyni í kvöld.

Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk, Arnór Atlason gerði 7 og þeir Einar, Alexander og Sigfús skoruðu allir þrjú mörk hver. Næsti leikur liðsins er við Ungverja á sunnudaginn. Bæði Íslendingar og Danir eru því komnir áfram í milliriðla.

Rússar eru sömuleiðis komnir áfram úr D-riðlinum eftir sigur á Portúgal í kvöld 35-32 og Króatar hafa sömuleiðis unnið báða leiki sína til þessa eftir 32-28 sigur á Norðmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×