Sport

Spánverjar sigruðu Frakka

Spánverjar sigruðu Frakka 29-26 í B-riðli EM í Sviss í dag og eru því komnir áfram í milliriðla. Sigur heimsmeistraranna var í raun öruggari en lokatölurnar gefa til kynna, því liðið náði mest 11 marka forystu í leiknum og hafði undirtökin allan tíman.

Frakkar og Þjóðverjar fara einnig áfram úr B-riðlinum en Slóvakar sitja eftir. Þá lauk leik Svisslendinga og Pólverja með jafntefli 31-31 og því eru Pólverjar í góðum málum í A-riðli með 3 stig á toppnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×