Sport

Spilar ekki aftur fyrir Viggó Sigurðsson

Vilhjálmur Halldórsson hafði litla ástæðu til að brosa í Sviss
Vilhjálmur Halldórsson hafði litla ástæðu til að brosa í Sviss NordicPhotos/GettyImages

Vilhjálmur Halldórsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður danska liðsins Skjærn, segist aldrei ætla að spila aftur undir stjórn Viggós Sigurðssonar eftir að þeir áttu hreint ekki í skap saman á EM í Sviss. Þetta kemur fram í viðtali við staðarblað í Danmörku í dag.

Vilhjálmur segist vera afar óhress með að hafa lagt á sig langt og strangt ferðalag til að bregðast við kalli landsliðsins, aðeins til þess að spila örfáar mínútur og láta Viggó Sigurðsson ausa yfir sig skömmunum fyrir. Því segist hann ekki ætla að spila aftur undir stjórn Viggós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×