Sport

Danir unnu bronsið á EM

Dönsku áhorfendurnir í Sviss urðu ekki fyrir vonbrigðum með sína menn.
Dönsku áhorfendurnir í Sviss urðu ekki fyrir vonbrigðum með sína menn.

Danir tryggðu sér bronsverðlaunin á Evrópumóti landsliða í handbolta í dag þegar þeir sigruðu Króata í úrslitaleik um 3. sætið, 32-27. Lars Möller var markahæstur Dana 9 mörk. Króatar áttu aldrei mögueika gegn Dönum sem náðu mest 7 marka forystu í leiknum.

Króatar misstu sinn besta mann meiddan af velli snemma leiks þegar Ivano Balic féll illa í gólfið og það reyndist um of fyrir Króata. Frakkar og Spánverjar mætast í úrslitaleik mótsins kl. 16 í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×