Sport

Óli Stef með 4 mörk og Ciudad í undanúrslitin

Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar þeir lögðu Celja frá Slóveníu í 8 liða úrslitum, 33-28 á útivelli. Þetta var síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitunum en Ciudad vann fyrri leikinn með 7 marka mun, 34-27. Ólafur skoraði 4 mörk fyrir Ciudad í kvöld.

Það er því orðið ljóst að auk Ciudad verða það Flensburg frá Þýskalandi, Portland San Antonio frá Spáni og Veszprém frá Ungverjalandi sem leika í undanúrslitunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×