Sport

Magdeburg lagði Lemgo

Magdeburg, lið Sigfúsar Sigurðssonar og Arnórs Atlasonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, bar í kvöld sigurorð af Lemgo 30-28. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2, en Íslendingarnir hjá Magdeburg komust ekki á blað í leiknum.

Gummersbach bar sigurorð af Melsungen á heimavelli 34-28, þar sem íslensku leikmennirnir létu mikið að sér kveða í liði Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10 mörk, þar af 2 úr vítum og Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk.

Þá vann Nordhorn sigur á Delitzsch 34-27 og Kiel lagði Dusseldorf 34-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×