Viðskipti erlent

SAS hefur ekki keypt í Icelandair

AFP

SAS hefur neitað þeirri frétt sem birtist í tímaritinu Travel People að félagið hafi eignast hlut í Icelandair en játar að samstarf félagsins við Icelandair verði haldið áfram. „Það eru engar viðræður yfirhöfuð í gangi um að við verðum eigendur í Icelandair. Þetta eru algjörlega rangar upplýsingar," segir Bertil Ternert, upplýsingafulltrúi SAS við Dagens Industri.

Samkvæmt frétt Travel People er Icelandair, sem verður brátt skráð í Kauphöll Íslands, metið á 65 milljarða króna. Í fréttinni kemur fram að FL Group, móðurfélag Icelandair, muni halda eftir fimmtán prósenta hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×