Sport

Federer er í algjörum sérflokki

Federer ber höfuð og herðar yfir aðra tennisleikara í dag
Federer ber höfuð og herðar yfir aðra tennisleikara í dag NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum tennisstjarnan Pete Sampras segist ekki sjá að nokkur tennisleikari í heiminum eigi möguleika á að velta Roger Federer af stalli á næstunni. Federer hefur verið einráður á toppnum síðan Sampras lagði spaðann á hilluna fyrir fjórum árum. "Ég sé engann þarna úti með vopn til að slá honum við og þeir geta ekki annað en reynt að verjast honum, hann stýrir öllum leikjum sem hann tekur þátt í," sagði Sampras.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×