Sport

Mikilvægur sigur FH á HK

FH-ingar unnu í kvöld gríðarlega mikilvægan 30-27 sigur á HK í DHL-deild karla í handbolta í Kaplakrika. HK hefði geta tryggt veru sína á meðal þeirra bestu með sigri, en þarf nú að bíða eitthvað lengur eftir því. HK er í 6.sæti deildarinnar með 28 stig, en FH er í því 7. með 23.  Fyrr í dag lögðu Eyjamenn svo Stjörnuna 32-27 í leik sem skipti í raun litlu máli þar sem bæði lið sigla lygnan sjó í efri- og neðrihluta deildarinnar. Leik Hauka og Víkings/Fjölnis er enn ólokið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×