Sport

Skallagrímur yfir í hálfleik

Skallagrímur hefur yfir 42-38 gegn Njarðvík þegar flautað hefur verið til leikhlés í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, en leikurinn fer fram í Borgarnesi. Heimamenn náðu mest 17 stiga forystu í fyrri hálfleiknum og hittu mjög vel úr langskotum sínum. Gestirnir hafa síðan vaknað til lífsins og náð að minnka mun heimamanna niður í aðeins 4 stig.  Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×