Sport

Fjórir kylfingar efstir og jafnir

Fjórir kylfingar eru efstir og jafnir eftir fyrsta hring á Wachovia-mótinu í golfi. Þetta eru Suður-Afríkumennirnir Trevor Immelman og Rory Sabbatini og Bandaríkjamennirnir Jim Furyk og Bill Haas. Allir fóru hringinn á 68 höggum, eða fjórum undir pari. Þrír sterkir kylfingar eru í 5.-7. sæti, þremur höggum á eftir: Phil Mickelson, Vijay Singh og Ernie Els.

Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn á sunnudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×