Sport

Fylkir sló Íslandsmeistarana út

Úr leik liðanna í gærkvöldi.
Úr leik liðanna í gærkvöldi.

Fylkir komst í úrslit deildabikarkepnni karla í handbolta í gærkvöld þegar liðið sló út Íslandsmeistara Fram. Valur og Haukar þurfa að mætast einu sinni enn til þess að knýja fram úrslit í rimmu liðanna.

Fylkir sem varð í 4. sæti í deildakeppninni í vetur vann einvígi liðanna því 2-0 en Árbæingar unnu fyrri leik liðanna í Framhúsinu á miðvikudag, þá með þriggja marka mun. Fylkismenn fylgdu þeim sigri eftir í gærkvöldi og sigruðu með 10 marka mun, 32-22.

Hlynur Morthens markvörður Fylkis varði meistaralega í gærkvöldi, alls 28 skot. Arnar Jón Agnarsson var markahæstur í Fylkisliðinu, skoraði 8 mörk. Heimir Örn Árnason skoraði 7 mörk en hann er að kveðja Fylkismenn og ganga til liðs við danska liðið Silkeborg/Bjerringbro.

Jóhann Einarsson var markahæstur í liði Fram, skoraði 5 mörk en næstur honum komu þeir Sergei Serenko og Björgvin Bjuörgvinsson með 3 mörk hvor. Íslandsmeistarar Fram eru þar með úr leik en Fylkismenn eru komnir í úrslit.

Fylkismenn þurfa enn að bíða eftir því að vita hvorir verða mótherjar þeirra, Valsmenn eða Haukar. Liðin mættust í Laugardalshöll í gærkvöldi. Valur vann fyrri leikinn með fjögurra marka mun á heimavelli Haukanna á miðvikudagskvöld.

Valsmenn virtust á góðri leið með að slá Haukana út úr keppni, náðu fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik 11-7. Haukar jöfnuðu metin, sigu síðan fram úr í seinni hálfleik og sigruðu, 29 - 27.

Jón Karl Björnsson var markahæstur hjá Haukum, skoraði 8 mörk, Gísli Jón Þórisson 6 og Árni Sigtryggsson 5. Flest mörk Vals skoraði Hjalti Pálmason eða 9, Fannar Friðgeirsson skoraði 7 mörk. Liðin þurfa því að mætast einu sinni enn, og það á heimavelli Hauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×