Sport

Haukar mæta Fylki í úrslitunum

Úr leik nr. 2 í rimmu liðanna þegar Haukar jöfnuðu metin í Laugardalshöll.
Úr leik nr. 2 í rimmu liðanna þegar Haukar jöfnuðu metin í Laugardalshöll.
Það verða Haukar sem leika til úrslita gegn Fylki í deildarbikarkeppni karla í handbolta en Hafnfirðingar lögðu Val með 5 marka mun, 32-27 að Ásvöllum nú undir kvöldið. Staðan í hálfleik var 14-15 fyrir Val. Guðmundur Pedersen var markahæstur Hauka með 6 mörk en Mohamadi Loutoufi hjá Val með 7 mörk. Haukar unni því einvígið við Val, 2-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×