Sport

Ísland - Holland í kvöld

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Hollendingum í Laugardalshöllinni klukkan 20 í kvöld, en þetta er fyrri æfingaleikur þjóðanna og liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir umspilsleikina gegn Makedóníu síðar í mánuðinum.

Aðgangur er ókeypis í Laugardalshöllinni í kvöld og því rétt að skora á alla að mæta og fylgjast með íslensku stúlkunum takast á við þær hollensku, en þar er á ferðinni eitt af sterkustu kvennalandsliðum heims. Síðari leikur liðanna verður svo háður á morgun klukkan 17 í Ásgarði í Garðabæ. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×