Innlent

Litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna

MYND/Pjetur
Mjög litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokka í landinu milli mánaða samkvæmt nýjum Þjóðarpúsli Gallups. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 40 prósent, Samfylkingarinnar 29 prósent og Vinstri - grænna 17 prósent. Tíundi hver maður kysi Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú og Frjálslyndir njóta stuðnings fjögurra prósenta landsmanna. Þjóðarpúlsinn leiðir einnig í ljós að stuðningur við ríkisstjórnina er 48 prósent en könnunin var gerð dagana 26. apríl til 26. maí.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×