Innlent

Valgerður ræður aðstoðarmann

Sigfús Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu kemur fram að Sigfús Ingi er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Stirling háskóla í Skotlandi. Hann hafði áður starfað í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu og sé í leyfi þaðan á meðan hann gegnir stöðu aðstoðarmanns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×