Handbolti

Súrt tap hjá Lemgo

Logi Geirsson spilaði meiddur í kvöld og skoraði 7 mörk, en það nægði Lemgo ekki
Logi Geirsson spilaði meiddur í kvöld og skoraði 7 mörk, en það nægði Lemgo ekki NordicPhotos/GettyImages
Íslendingalið Lemgo er úr leik í EHF keppninni í handbolta eftir súrt tap fyrir franska liðinu Dunkerque. Franska liðið vann fyrri leik liðanna 35-30, en Lemgo vann leikinn í kvöld 31-27 og var því aðeins marki frá því að fara áfram í keppninni þar sem liðið átti titil að verja frá í fyrra. Logi Geirsson var markahæstur í liði Lemgo með 7 mörk ásamt Filip Jicha.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×