Handbolti

Gummersbach steinlá fyrir Nordhorn

Alfreð og félagar fengu skell í kvöld
Alfreð og félagar fengu skell í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Fjórir leikir voru háðir í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach töpuðu stórt fyrir Nordhorn á útivelli 42-31 og lét Alfreð hafa eftir sér eftir leikinn að sínir menn gætu gleymt því að gera eitthvað í Meistaradeildinni um næstu helgi ef þeir ætluðu sér að spila svona áfram.

Hamburg burstaði Lubbecke 38-27, Göppingen lagði Kronau/Östringen 31-30 og Wilhelmshavener tapaði heima fyrir Magdeburg 33-19.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×