Sport

Jafnt hjá ÍBV og Val

ÍBV og Valur gerðu jafntefli, 24-24 í Vestmannaeyjum í DHL-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var frestaður leikur sem fram átti að fara í gær. Mladen Cacic var markahæstur heimamanna í ÍBV með 9 mörk en Hjalti Þór Pálmason skoraði mest Valsmanna eða 7 mörk.

Valur er í 3. sæti deildarinnar með 30 stig, þremur stigum á eftir Haukum sem eru í 2. sæti en Fram er efst með 34 stig. ÍBV er í 11. sæti með 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×