Lífið

Aðdáendur hóta aðgerðum gegn yfirvöldum

Magni Neitað um vegabréfsáritun til  Bandaríkjanna, vonast til að málið skýrist í dag.
Magni Neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna, vonast til að málið skýrist í dag. Fréttablaðið/Hrönn
Magna Ásgeirssyni hefur verið neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna en hann er bókaður í tónleikaferð þar með Rock Star: Supernova.

Söngvarinn vildi lítið tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann.

„Það varð eitthvað smá klúður í umsókninni en fólkið í Los Angeles er að vinna í þessu og reynir allt hvað það getur gert," sagði Magni. Hann taldi góðar líkur á því að greitt yrði úr flækjunni í dag og hann gæti því haldið utan sem fyrst.

Magni er sem kunnugt er bókaður í tónleikaferð með hljómsveitinni Rock Star: Supernova og Húsbandinu en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum eru allar líkur á því að hann taki stöðu gítarleikara í síðarnefndu hljómsveitinni.

Magni greindi fyrst frá þessu á aðdáendasíðu sinni, magni-ficent.com, og sagði að líf hans væri nógu flókið um þessar mundir þótt ekki bættist ofan á að honum hefði verið neitað um vegabréfsáritun .

„Ég hef ekki hugmynd um hvers vegna," skrifar Magni sem augljóslega tekur þessu mjög persónulega.

„Kannski er ég ekki nógu sérstakur sem listamaður," bætir hann við. „Þetta er móðgun við mig sem listamann og ég ætla ekki að taka þessu þegjandi og hljóðalaust," bætir hann við.

Ekki stóð á viðbrögðum aðdáenda hans sem voru margir hverjir undrandi á þessari ákvörðun bandarískra yfirvalda og eru hneykslaðir yfir framkomunni í garð söngvarans. Margir hinna bandarísku gesta segjast skammast sín fyrir stjórnvöld sín og bjóðast til að ræða málin við þingmenn fulltrúadeildarinnar eða sendiherrann.

„Hringdu í Valgerði Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, og láttu hana redda þessu," skrifar notandinn goodonyou.

„Hún þarf á atkvæðum þínum að halda," bætir hann við.

Notandinn Ida segist hafa sent bréf til Valgerðar og biðlar til annarra að gera slíkt hið sama til að þrýsta á vegabréfsáritunin verði veitt sem fyrst því annars verði gripið til stórtækra aðgerða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.