Menning

Grafík á Miðbakka

Eitt verka Soffíu á sýningunni sem lýkur í dag.
Eitt verka Soffíu á sýningunni sem lýkur í dag.

Það er velkunnugt leyndarmál að félagsskapurinn Íslensk grafík rekur lítið safn, sölu og sýningarsal, í Hafgnarhúsinu á Miðbakkanum í gömlu höfninni í Reykjavík. Þar eru gjarnan uppi sýningar á verkum félagsmanna og gesta þeirra og þar er nú sýning á ljósmyndaverkum Soffíu Gísladóttur.

Hún kallar sýningu sína Ljósmyndir, en opnunin var hinn 4. og lýkur henni í dag, 12. febrúar.

Soffía útskrifaðist frá grafíkdeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Hún hefur unnið mikið með ljósmyndir í verkum sínum og með tilkomu stafrænnar tækni hefur Soffía notað tölvu bæði sem grafískt verkstæði og stafrænt myrkra­herbegi.

Soffía bjó í Kamloops í Kanada síðastliðin tvö ár þar sem hún vann í myndlist og hélt nokkrar einkasýningar. Hún ferðaðist víða um Bresku-Kólumbíu og varð gagntekin af fegurðinni þar sem veitti henni mikinn innblástur. Á sýningunni í sal íslenskrar grafíkur má sjá ljósmyndir sem Soffía hefur tekið í Kanada, á Íslandi og víðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.