Lífið

Hlakkar til að hitta gestina

Védís Kara Ólafsdóttir hlakkar mest til að hitta allt fólkið sem ætlar að fagna fermingunni með henni í vor.
Védís Kara Ólafsdóttir hlakkar mest til að hitta allt fólkið sem ætlar að fagna fermingunni með henni í vor. Fréttablaðið/Valli
Fermingarundirbúningurinn hjá Védísi Köru Ólafsdóttur hófst síðastliðið haust með messusókn og fermingarfræðslu og hefur undirbúningurinn að veisluhöldunum sjálfum staðið yfir í svipaðan tíma.

„Mamma byrjaði löngu fyrir jól í veisluundirbúningi en ég byrjaði nú bara að pæla í þessu fyrir um viku síðan,“ segir Védís sem fermist í Árbæjarkirkju hinn 5. apríl næstkomandi. Fermingarfræðslan er að sögn Védísar ekki í mestu uppáhaldi hjá krökkunum.

„Við þurfum að sækja tíu messur fram að fermingu og það er svolítið leiðinlegt,“ segir Védís Kara sem þó segist ekki vita af neinum sem ekki ætlar að láta ferma sig og hjá henni kom aldrei annað til greina. „Við frændsystkinin höfum fermst hvert á eftir öðru og nú er röðin komin að mér svo ég gat ekki slitið þessa keðju.“

Kjóllinn sem Védís fermist í er hvítur með silfruðum blómum og verður hún í stíl við vinkonurnar Heiðdísi og Ólöfu sem fermast með henni.

„Við verðum allar í eins kjólum og allar með appelsínugult þema í veislunni,“ segir Védís brosandi og segir litinn upprunninn af heimasíðu vinkvennanna. Védís er þó einnig með rautt þema en hún fær tvær veislur sama dag, eina hjá mömmu og hina hjá pabba. 

Aðspurð segir Védís Kara flest fermingarsystkinin meira spennt fyrir gjöfunum frekar en trúarlegri hlið fermingarinnar en sjálf er henni eiginlega alveg sama um gjafir. „Ég er kannski svolítið skrítin því mér er eiginlega alveg sama hvað ég fæ í fermingargjöf. Ég er mest spennt fyrir að hitta allt fólkið sem kemur til að fagna fermingunni með mér,“ segir Védís Kara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.