Bíó og sjónvarp

700 milljónir í klám á tímann

Jenna Jameson lepur líkast til ekki dauðann úr skel. Jenna er ein af best launuðu klámmyndaleikkonum í heimi.
Jenna Jameson lepur líkast til ekki dauðann úr skel. Jenna er ein af best launuðu klámmyndaleikkonum í heimi.

Andstaðan við klám fer vaxandi hér á landi og víðar. En svo virðist sem þessi andstaða eigi við ofurefli að etja ef marka má niðurstöður vefsíðunnar Top Ten Reviews.

Samkvæmt fréttavef Ekstra Blad­ets er 700 milljónum eytt í klám á hverri klukkustund um allan heim. Þetta þýðir að á hverri sekúndu fara í kringum 200 þúsund íslenskar krónur á hverri sekúndu í eitthvað sem tengist klámiðnaðinum beint eða óbeint. Og það sem meira er; þessar tölur fara síst lækkandi heldur hækka ef eitthvað er. Heimsveltan á klámi, hvort sem það er á netinu eða sölu mynda, er því í kringum sex þúsund milljarðar íslenskra króna.

Hvergi er framleitt jafn mikið af klámi og í Bandaríkjunum. Tæplega níutíu prósent allra klámsíðna eru bandarískar og frá bandarískum klámframleiðslufyrirtækjum koma fleiri klámmyndir en framleiddar eru í nokkru öðru landi. Titlunum fjölgar með ári hverju en árið 2005 voru til að mynda framleiddar fimmtán þúsund klámmyndir í Bandaríkjunum en árið þar áður voru rúmlega tíu þúsund titlar gefnir út. Þessi ört vaxandi útgáfa helst þó ekki í hendur við þá staðreynd að sala á myndböndum hefur dregist lítillega saman.

Breskur klámiðnaður er sagður vera í hvað mestum vexti á netinu og frændur okkar í Svíþjóð og Danmörku halda uppi merkjum klámsins á Norðurlöndum en löndin tvö eru meðal tuttugu öflugustu klámmyndaframleiðenda í heiminum. Á toppnum tróna enn sem fyrr Bandaríkin en fast á hæla þeirra fylgja lönd á borð við Brasilíu og Holland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×