Tónlist

Teitur á Íslandi

Teitur spilar í Borgarfirði á föstudag ásamt Pétri Ben.
Teitur spilar í Borgarfirði á föstudag ásamt Pétri Ben.

Pétur Ben og hinn færeyski Teitur halda tónleika í Fosstúni í Borgarfirði á föstudag á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN. Þetta eru fyrstu tónleikar Teits á Íslandi. Hann hefur notið alþjóðlegrar velgengni undanfarið og hefur önnur plata hans, Stay Under the Stars, hlotið verðskuldaða athygli. Fór lagið Louis Louis m.a. í fyrsta sæti iTunes-spilunarlistans í Danmörku.

Teitur er staddur á Íslandi í tilefni af Atlantic Music Event sem fer fram á Nasa á laugardag þar sem hann spilar með samlöndum sínum. Tónleikarnir á föstudag hefjast klukkan 21.00 og kostar 1.000 krónur inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×