Bíó og sjónvarp

Hið smæsta í hinu stærsta

Verður nokkuð eins og áður? Systurmyndir um stærsta raforkuframleiðslusvæði heims hafa vakið gífurlega athygli um allan heim. Úr kvikmyndinni „Kyrrmynd“ eftir leikstjórann Zhang Ke-Jia.
Verður nokkuð eins og áður? Systurmyndir um stærsta raforkuframleiðslusvæði heims hafa vakið gífurlega athygli um allan heim. Úr kvikmyndinni „Kyrrmynd“ eftir leikstjórann Zhang Ke-Jia.

Þriggja gljúfra stíflan sem verið er að reisa austur í Kína er verkfræðiundur á skala sem fæstir geta ímyndað sér. Uppistöðulónið sem verður til við framkvæmdirnar þar mun drekkja heimilum yfir milljón manna auk fjölda sögufrægra minja. Áhrifasvæði stíflunnar er sögusvið tveggja kvikmynda sem Fjalakötturinn sýnir í kvöld kl. 20 og 22.

Stíflan í lengsta fljóti Asíu, Yangtze-ánni, á að vera tilbúin árið 2009 og verður þá stærsta raforkuframleiðslusvæði í heiminum en um 650 kílómetra langt stöðuvatn mun myndast við þessar aðgerðir. Systurmyndirnar „Kyrr­mynd“ og „Dong“ eftir kínverska leikstjórann Zhang Ke-Jia eru áhrifamikil og óvenjuleg innlegg í umræðuna um stóriðjuframkvæmdir og því fengur að sýningu þeirra hér á landi.

„Kyrrmynd“ gerist í þorpinu Fengjie, sem hefur nú þegar orðið fyrir miklum áhrifum af framkvæmdunum, og bregður ljósi á breytta lífshætti með því að skoða ástarsamband í þorpinu. Myndin vann óvænt til aðalverðlaunanna á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í fyrra. Hin myndin er heimildarmynd um listmálara sem hefur helgað ævistarf sitt svæðinu sem fer undir vatn. Þó að hvorug myndanna fjalli beinlínis um stífluna bregða þær ljósi á breytta lífshætti á svæðinu, sú fyrrnefnda með því að skoða ástarsamband í bæ sem er að breytast. Þær byggja ekki á hefðbundnum söguþræði heldur beinast frekar að því að ná fram stemningunni og tilfinningunni sem fylgir söguefninu og umhverfi þess.

Athygli er vakin á því að breyting hefur orðið á áður auglýstri dagskrá Fjalarkattarins, sem sýnir aðeins þessar tvær myndir í kvöld. Þannig flyst dagskrá Kvik­sögu um frásagnarmenningu og nútímaborgir fram á þriðjudag sem og sýning á erótísku kvikmyndinni „Rauðhærða konan“ eftir Tatsumi Kumashiro.

Annað kvöld verða tvær aðrar myndir Kumashiro til sýninga auk franskrar heimildarmyndar eftir leikstjórann Jacques Debs.

Vegamynd Debs fjallar um ferðalag um átakasvæði á leiðinni frá Sarajevo til Jerúsalem og ber yfirskriftina „Múslimar í Evrópu - kristnir í Mið-Austurlöndum“. Leikstjórinn verður viðstaddur sýningu myndarinnar kl. 21 á mánu­­dagskvöldið. Tónlist skiptir leikstjórann miklu máli og lætur hann oft semja hana sérstaklega. Í þessari mynd má hlýða á afrakstur samstarfs Sverrir Guðjónssonar og líbanska tónskáldsins Ritu Ghosn, sem samdi tónverkið „Liturgy“ fyrir myndina. Sverrir syngur á arameísku í verkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×