Tónlist

Í ljósum kertanna

Hörður Torfason  Heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kvöld.
Hörður Torfason Heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kvöld. MYND/Páll Bergmann

Árlegir kertaljósatónleikar söngvaskáldsins Harðar Torfasonar fara fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tónleikar þessir njóta jafnan gífurlegra vinsælda enda hefur tónlistarmaðurinn fjölhæfi fest sig í sessi sem einn dáðustu listamanna þjóðarinnar. Sem fyrr mun Hörður leika nýtt efni í bland við gamlar perlur auk þess að segja sögur úr veröldinni eins og honum er einum lagið.

Hörður segist ekki hafa tölu á sínum kertaljósatónleikum og segist halda að hann hafi nú staðið fyrir þeim í um þrjá áratugi.

„Oft notar maður þetta tækifæri til þess að kynna nýtt efni og spila svo gömlu lögin. Fólk er óhrætt við að hringja í mig og senda mér skeyti með óskalögunum sínum,“ segir Hörður og bendir á að hann hafi einnig tekið við slíkum óskum úr salnum ef svo ber undir.

Hörður er að leggja lokahönd á plötu sem ber titilinn Jarðarsaga og tilheyrir verkefni sem hann kennir við Vitann. „Það er ævintýri sem ég hef verið að skrifa í nokkra áratugi. Ég hef þegar gefið út tvær plötur í þessu safni, Loftsögu og Eldsögu, en þetta verða fimm plötur í allt.“ Aðdraganda þessa verks rekur Hörður til þess að fólk var sífellt að biðja hann um að skrá ævisögu sína. „Ég hafði takmarkaðan áhuga á því þá. Ég var upptekinn í minni vinnu. Sá tilgangur sem ég lagði upp með þegar ég sagði skilið við atvinnuleikhúsið í kringum árið 1972 var að fela mig ekki á bak við eitthvað hlutverk. Ég fór að láta lífið skrifa hlutverkið fyrir mig.

Þetta verk spinnst í kringum þetta lífsfar mitt og byggir á því, það er ungur maður sem fer í gegnum lífið og tjáir sig í gegnum söngva.“

Einnig er von á bókstaflegri ævisögu Harðar og vinnur rithöfundurinn og útvarpsmaðurinn Ævar Þór Jósepsson að skráningu hennar. Bæði þessi verk eru væntanleg með haustinu.

Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×