Bíó og sjónvarp

Góðar myndir í boði í dag

Diana á yfirgefnum leikvelli í yfirgefnum bæ Kvikmyndagerðarkonan Tone Grøttjord kynntist síðustu íbúum í smábænum Prirechnyy í Rússlandi.
Diana á yfirgefnum leikvelli í yfirgefnum bæ Kvikmyndagerðarkonan Tone Grøttjord kynntist síðustu íbúum í smábænum Prirechnyy í Rússlandi. Mynd/Motlys - Thorstein Nodland

Annað eins framboð á fínum heimildarmyndum þekkist vart utan hátíða. Það er dagur heimildarmyndarinnar í dag.

Í Háskólabíói verður frumsýnd myndin Tímamót eftir þá félaga Guðmund Erlingsson og Herbert Sveinbjörnsson. Hefst sýningin kl. 17. Hefur verið fjallað nokkuð um myndina hér í blaðinu og víðar en hún er merkilegt tillegg í umræðu um jafnréttismál hér á landi. Aðalpersónur hennar eru þrír elskulegir menn sem standa á ákveðnum tímamótum en þeir eru í fyrsta sinn að eignast sitt eigið heimili.

Á sama tíma verður sýnd frábær mynd eftir ungan norskan leikstjóra um yfirgefinn námabæ í norðurhluta Rússlands á vegum Reykjavik Documentary Work­shop. Myndin er sýnd í Tjarnarbíói í samstarfi við kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn. Myndin er frá 2006 og er 52 mín. að lengd. Hún fjallar um íbúa rússneska bæjarins Prirechnyy, sem hafa fengið bréf frá stjórnvöldum Murmansk-sýslu um að bærinn þeirra sé ekki lengur til. Þrátt fyrir það neita um sjötíu eldri borgarar að yfirgefa þennan fyrrverandi námubæ. Við kynnumst fjórum þeirra í skrítinni og smárri veröld þeirra í Norður-Rússlandi. Eru það einkum konurnar sem eru þungamiðjan og eru örlög þeirra ógleymanleg í nærfærinni túlkun leikstjórans, sem vann verkið strax eftir nám. Tone Grøttjord nam kvikmyndafræði við National Film and Television School í Bretlandi. Grøttjord hefur unnið fyrir framleiðslufyrirtækið Motlys síðan 2003. Prirechnyy er fyrsta mynd hennar í fullri lengd.

Fimmtudaginn síðasta var Kvikmyndaklúbbi Akureyrar hleypt af stokkunum með sýningu ítölsku myndarinnar Non ti muovere í Nýja bíó. Þeir halda áfram fyrir norðan: á morgun, 18. og 20. apríl verða sýndar þrjár myndir frá kínverska menningarsvæðinu í Borgarbíói. Sýningar hefjast kl. 18.00 og er aðgangur ókeypis. Gestum er boðið að skrá sig í KvikYndi, Kvikmyndaklúbb Akureyrar.

Hér sunnan heiða heldur áfram glæsilegri dagskrá Fjalakattarins í Tjarnarbíó. Utan Prirechnyy eru hefur klúbburinn sýningar á myndum franska kvikmyndagerðarmannsins Raymond Depardon. Næstu þrjár helgar sýnir klúbburinn átta myndir eftir hann í samstarfi við Franskt vor á íslandi. Herlegheitin hefjast með þrjúbíói í dag þar sem fyrsti hluti þríleiksins „Bændurnir“, tíu ára kvikmyndaverkefnis Depardon þar sem hann skrásetur breytingar í landbúnaði, verður sýnd.

Á morgun verða síðan sýndir tveir hlutar af þremur úr verkefninu „Blaðamenn“ þar sem Depardon fylgir eftir frambjóðanda í kosningaham og kynnir sér líf paparazzi-ljósmyndara.

Í kvöld endursýnir Fjalakötturinn enn fremur kínversku kvikmyndirnar Kyrrmynd og Dong en þær verða sýndar á Akureyri um næstu helgi. -






Fleiri fréttir

Sjá meira


×