Bíó og sjónvarp

Óbeisluð fegurð á hvíta tjaldið

Það var Tina Naccache, samstarfskona Hrafnhildar Gunnarsdóttur, sem vakti athygli hennar á Óbeislaðri fegurð, en Tina hafði heyrt um hana í útvarpi í Beirút.
Það var Tina Naccache, samstarfskona Hrafnhildar Gunnarsdóttur, sem vakti athygli hennar á Óbeislaðri fegurð, en Tina hafði heyrt um hana í útvarpi í Beirút. MYND/E.ól

Hrafnhildur Gunnarsdóttir vinnur að heimildarmynd um fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, í samstarfi við Tinu Naccache frá Líbanon. Hrafnhildur og Tina hafa áður gert saman myndirnar Lifandi í limbó og Hver hengir upp þvottinn? auk þess sem Tina aðstoðaði Hrafnhildi við gerð myndarinnar Hrein og bein.

„Tina kom í heimsókn til mín frá Líbanon. Hún fór að tala um einhverja fegurðarsamkeppni sem hún hafði heyrt um í útvarpinu í Beirút. Ég kannaði málið og þá kom í ljós að það var fegurðarsamkeppnin á Ísafirði,“ útskýrði Hrafnhildur. Þær skelltu sér því vestur með stuttum fyrirvara, „til að fjalla um þennan heimsviðburð, sem fólk fyrir vestan gerði sér grein fyrir að væri í gangi“, sagði Hrafnhildur.

Hún og Tina hyggjast gera 28 mínútna heimildarmynd um keppnina og stefna á að klára hana sem fyrst. Hrafnhildur er ekki enn farin að gera sér hugmyndir um sýningu eða dreifingu. „En af því að keppnin vakti mikla athygli erlendis munum við örugglega kanna áhugann úti,“ sagði hún.

 

ánægð með umfjöllun Matthildur Helgadóttir, einn skipuleggjenda Óbeislaðrar fegurðar, hefur verið í sambandi við fjölda erlendra fjölmiðla.

BBC World Service fjallaði um keppnina í gær, en það er langt í frá eini miðillinn sem hefur sýnt henni áhuga. Matthildur Helgadóttir, einn skipuleggjenda keppninnar, hefur verið í sambandi við dagblað og tímarit frá Frakklandi, blaðamann í Bretlandi sem hyggst skrifa um keppnina fyrir Daily Mirror, svo eitthvað sé nefnt. „Það var greinilega töluverð umfjöllun um þessa keppni út um allan heim, sem sést ef „untamed beauty“ er slegið inn í leitarvélar á netinu,“ sagði Matthildur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×