Bíó og sjónvarp

Brynhildi skipt út fyrir breska leikkonu

Theodór Júlíusson kemur sterklega til greina fyrir hlutverk heimilisleysingja í hryllingsmyndinni Lordi.
Theodór Júlíusson kemur sterklega til greina fyrir hlutverk heimilisleysingja í hryllingsmyndinni Lordi.

„Skjótt skipast veður í þessum bransa. Þetta er vissulega súrt í broti en svona getur þetta verið," segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi hjá Kvikmyndafélagi Íslands.

Þau leiðinlegu tíðindi hafa nú borist að Brynhildur Guðjónsdóttir rétt missti af aðalhlutverkinu í hryllingsmyndinni Lordi: Dark Floors með finnsku skrýmslahljómsveitinni Lordi. Kvikmyndafélag Íslands er meðframleiðandi myndarinnar og þegar tilkynnt var um samstarfið var talið nánast öruggt að eitt af aðalhlutverkunum væri eyrnamerkt íslenskri leikkonu. Bresk leikkona hefur hins vegar verið ráðin í hlutverkið.

Hins vegar gætu tveir íslenskir karlleikarar af eldri kynslóðinni fengið stór hlutverk í kvikmyndinni. Þeir Pétur Einarsson og Theódór Júlíusson hafa að undanförnu mætt í prufur hjá Reykjavík Casting og var talið líklegt að þau mál myndu skýrast seint í gær eða í dag.

 

Brynhildur var komin nálægt því að vera ráðin í aðalhlutverk myndarinnar.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þykir Theódór þó líklegri og var Mýrin meðal annars send út til leikstjórans en þar fór leikarinn á kostum sem smáglæpamaðurinn Elliði. Um er að ræða hlutverk drykkfellds heimilislauss manns og er áætlað að tökudagarnir verði hátt í tuttugu hjá Theódóri ef af verður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.