Harry og Chelsy kynntust fyrst þegar konungsfjölskyldan fór í stutt frí til Simbabve. Harry ku hafa fallið strax fyrir stúlkunni og meðal annars létt á hjarta sínu við nokkra ferðamenn sem sátu í sínum mestu makindum við Okavango-vatnið í Botsvana.
„Harry skildi bara ekki hvernig í ósköpunum hann gat verið orðin ástfanginn af þessari stúlku eftir bara fjóra daga,“ sagði einn sjónarvottanna.
Stúlkan frá Simbabve

Chelsy er algjörlega á skjön við Kate sem Vilhjálmur sagði upp fyrir skömmu. Hún er alin upp við allsnægtir og hefur aðsetur í þremur löndum en faðir hennar er vellauðugur viðskiptajöfur í Simbabve. Chelsy hefur verið að geta sér góðs orðs fyrir fyrirsætustörf en þykir með eindæmum klár og var góður nemandi í skóla. „Henni er alveg sama að Harry er prins, henni finnst það jafnvel til trafala,“ sagði einn heimildarmaður við breska blaðið Daily Mail.
Og þótt Chelsy virki á marga sem litlu snobbuðu stelpuna þá hefur hennar barnslegi þokki og einlægni heillað meðlimi konungsfjölskyldunnar upp úr skónum. Jafnvel Bretar virðast smám saman vera farnir að opna augun fyrir því að Harry og Chelsy gætu verið næstu konunglegu hjónakornin. Þeir eru, þótt ótrúlegt megi virðast, farnir að trúa því að ástin geti þrifist innan Buckingham.

Sá brjálaði verður að manni
Fjölmiðlar hafa jafnframt verið að taka Harry í sátt á undanförnum misserum. Enda hefur margt breyst og eru þeir ófáir sem vilja þakka Chelsy því að Harry er orðinn að manni.Prinsinn rauðbirkni var áður fyrr ólátabelgurinn í Buckingham, drakk áfengi ótæpilega og reykti gras og gerði allt brjálað þegar hann mætti sem nasisti á grímuball. Þjóðin saup hveljur og blöðin tóku hann af lífi með fyrirsögnum á borð við „Harry the Nazi“. Hann var sagður hafa niðurlægt arfleifð langafa síns og langömmu sinnar Elísabetar sem þjöppuðu þjóðinni saman þegar Hitler lét sprengjum rigna yfir Bretland.
En nú er það sem sagt Harry sem á sviðið enda virðist Vilhjálmur prins eingöngu hafa áhuga á fögrum fljóðum og eltir hvert einasta pils á skemmtistöðum höfuðborgarinnar. Harry er að fara í stríðið til Íraks og ætlar sér að verja heiður fjölskyldu sinnar og þjóðar. Og heima bíður hans hin snobbufríða Chelsy. Vilhjálmur prins verður síðan alveg örugglega á næsta bar með enn einni nafnlausu frillunni.