Bíó og sjónvarp

Landnámssetrið eins árs

Sýningin um orðhákinn önuglynda hefur trekkt vel allt frá opnun Landnámssetursins.
Sýningin um orðhákinn önuglynda hefur trekkt vel allt frá opnun Landnámssetursins.

Ár er nú liðið frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni eru aðdáendur afmæla og einkum þeir yngstu boðnir sérstaklega velkomnir í setrið.

Leikritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson var frumsýnd þennan dag fyrir ári og gengur það enn fyrir fullu húsi. Síðan hafa tvær leiksýningar bæst við - Svona eru menn með þeim KK og Einari Kárasyni og Mýrarmaðurinn eftir Gísla Einarsson. Báðar þessar sýningar hafa verið sýndar frá því um áramót við mikinn fögnuð. Sýningum verður haldið áfram í maí og júní. Einnig er stefnt að því að fleiri listamenn láti til sín taka á Söguloftinu og hefur nafn Brynhildar Guðjónsdóttur leikkonu verið nefnt í því samhengi.

Mikil aðsókn hefur einnig verið að Landnáms-sýningunni og Egils- sýningunni. Um tuttugu þúsund gestir hafa heimsótt setrið þetta fyrsta starfsár. Sýningarnar höfða til fólks á öllum aldri. Gengið er í gegnum sýningarrýmið með sérstakri hljóðleiðsögn sem fáanleg er á fimm tungumálum auk sérstakrar barnarásar á íslensku.

Gestir undir tólf ára aldri frá ókeypis aðgang á Landnámssýninguna í dag en nánari upplýsingar um starfssemina má finna á heimasíðunni www.landnamssetur.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×