Bíó og sjónvarp

Útskrift Kvikmyndaskólans

Böðvar bjarki Pétursson. Frumkvöðullinn að baki Kvikmyndaskóla Íslands.
Böðvar bjarki Pétursson. Frumkvöðullinn að baki Kvikmyndaskóla Íslands.

Á föstudag og laugardag sýndu nemendur Kvikmyndaskóla Íslands lokaverkefni sín í Bæjarbíói í Hafnarfirði og húsakynnum skólans að Lynghálsi: átta lokaverkefni nemenda sem unnin voru undir stjórn Ágústs Guðmundssonar og enn fleiri áfangaverkefni sem unnin voru undir handleiðslu Maríönnu Friðjónsdóttur, Viðars Víkingssonar, Þorgeirs Guðmundssonar og Hilmars Oddssonar.

Gengið hefur verið frá samningi milli menntamálaráðuneytis og Kvikmyndaskóla Íslands um formlega viðurkenningu á þremur nýjum sérsviðum. Skólinn mun því bjóða upp á nám í fjórum deildum nú í haust: Framleiðslu og leikstjórn; kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu; handritagerð og kvikmyndaleik, og þáttastjórnun. Hér er um að ræða tveggja ára námsbrautir á framhaldsskólastigi.

Útskrifaðir nemendur skólans starfa bæði hjá kvikmyndafyrirtækjum og hjá sjónvarpsstöðvum. Kvikmyndaskóli Íslands fagnar 15 ára afmæli á þessu ári. Skólinn byggir á reynslu og þekkingu starfandi kvikmyndagerðarmanna. Eitt megineinkenni skólans er að þar kennir bransinn sjálfur til verka. Þannig verður til náið samband við framleiðslufyrirtæki landsins. Með hinu nýja námsframboði opnast nýjar og spennandi námsleiðir fyrir nemendur. Inntökuviðtöl vegna náms á haustönn verða síðustu vikuna í maí.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 8456807 eða á skrifstofu skólans í síma 5333309.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.