Stjörnur, sandur og brjóst 21. maí 2007 09:55 Sophie marceau og brjóstið á cannes.
Eina ferðina enn munu blöð fyllast af myndum af fögru fólki á rauða dreglinum því nú er Cannes hátíðin byrjuð. Nú herja ljósmyndarar með flass á stjörnurnar og á morgun birtast ummæli um hvort þær voru flottar eða hörmulegar og hver skandalíseraði mest. Persónulega leiðist mér að horfa á þessar síðkjólaathafnir. Mér leiðast reyndar síðir kjólar. Punktur. Skemmtilegra að sjá hver heldur þakkarræðuna á perunni eða hver missir brjóstið út úr kjólnum. Svoleiðis hlutir gerast auðvitað mun frekar í Frakklandi heldur en í Hollywood. Cannes er náttúrlega hátíð skandalanna og það verður skemmtilegt að sjá hvaða mynd gerir alveg út af við siðgæðisvitund fólks í ár. En auðvitað samþykki ég það að það eru hátíðir sem þessar sem geta hjálpað fatahönnuðum að komast á kortið, eða þá rústað ímynd þeirra gersamlega. Hjá Yves Saint-Laurent hefur hönnuðurinn Stefano Pilati til dæmis náð föstu kjólasambandi við leikkonur eins og Tildu Swinton, Julianne Moore og Kristinu Scott Thomas, sem eru nú allar frekar þekktar fyrir „artí“ myndir, og heldur þar í ákveðna hefð eins og þegar Catherine Deneuve var aðalmúsa fyrirtækisins. Moschino vill helst klæða leikkonur sem eru minna frægar því eins og Ítalarnir vita þá er best að ná leikkonum sem yngstum og ferskustum því þá eru þær líklegri til þess að halda sig við hönnuðinn þegar aldurinn færist yfir eins og fyrrnefnd Deneuve. (Verð reyndar að viðurkenna að ég er með algjört æði fyrir Catherine Deneuve þessa dagana og er að uppgötva gamlar myndir með henni. Snilldin „Hunger“ þar sem hún leikur kynþokkafulla tvíkynhneigða blóðsugu er ákveðið tískulistaverk því þar sprangar hún um í dömulegum drögtum, hælaskóm og rauðum varalit með uppsett hár og sólgleraugu. Hver sagði að „eighties“ tískan þyrfti alltaf að vera hræðileg?) En, aftur að Cannes. Hlakka til að sjá myndir af svölum evrópskum stjörnum sem tekst alltaf að vera miklu smartari en þessar gervilegu Hollywood-pæjur. Mæta bara í svörtum kjól eða gallabuxum og greiða sér varla en leiftra af kynþokka. Hlakka líka til að sjá hvort Sophie Marceau missi aftur líkamsparta út úr kjólnum á rauða dreglinum. P.S. Mætti á opnun Kate Moss loves Top Shop á föstudagsmorgun. Var tíu mínútum of sein og skilst að ég hafi misst af flottustu fötunum því allt seldist á augabragði. En ég græddi samt vatnsflösku með Kate Moss utan á. Bíð spennt eftir hvað gerist þegar ég klára innihaldið.
Mest lesið Vildi milljón pund, bauðst hálf og afþakkaði boðið Lífið Búa í einstakri þakíbúð í miðborginni en Halli keypti líka æskuheimilið sitt á móti Lífið „Er þetta kannski eitthvað sem þú vilt senda okkur í tölvupósti“ Lífið Fer ekki út úr húsi eftir greininguna Lífið Ungfrú Danmörk fegurst allra Lífið Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Bíó og sjónvarp Edrú í eitt ár Lífið Bjarki og Rósa orðin hjón Lífið Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ Tónlist Lára og Jens verða mamma og pabbi Lífið Fleiri fréttir „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira