Bíó og sjónvarp

Aftur með Wahlberg

Martin Scorsese mun starfa aftur með Mark Wahlberg í mynd um Atlantic City.
Martin Scorsese mun starfa aftur með Mark Wahlberg í mynd um Atlantic City.

Leikstjórinn og Óskarsverðlaunahafinn Martin Scorsese ætlar að leikstýra sjónvarpsmynd um borgina Atlantic City í New Jersey, sem er þekkt fyrir skemmtanaiðnað sinn og fjárhættuspil. Gerðist mynd Scorsese, The Color of Money, einmitt í sömu borg.

Með aðalhlutverk í myndinni fer Mark Wahlberg, sem lék einnig í Óskarverðlaunamynd Scorsese, The Departed. Var hann tilnefndur sem besti leikarinn í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.