Tónlist

Synir Johns Lennon sættast

Átti frumkvæðið að sáttafundum þeirra bræðra.
Átti frumkvæðið að sáttafundum þeirra bræðra.

Julian og Sean Lennon, synir fyrrum Bítilsins Johns Lennon, hafa grafið stríðsöxina sem staðið hefur á milli þeirra bræðra síðustu átta ár. Hálfbræðurnir eru nú byrjaðir að talast við að nýju en stirrt hafði verið á milli þeirra allt frá því að Julian lét hafa eftir sér niðrandi ummæli um Yoko Ono, síðari eiginkonu Johns og móður Seans. Móðir Julians er fyrri eiginkona Johns, Cynthia. Það var hinn 44 ára gamli Julian sem átti frumkvæðið að sáttunum.



„Mér fannst vera kominn tími á breytingar í mínu lífi. Hluti af þeim breytingum var að fá Sean aftur inn í myndina. Ég vildi það vegna þess að ég elska hann,“ sagði Julian í viðtali við New York Post.



Julian kom Sean á óvart á tónleikum þess síðarnefnda í Prag fyrir skemmstu. Julian hafði skipulagt endurfundina án vitundar bróður síns og birtist honum að óvörum baksviðs að tónleikunum loknum þar sem hann lagði til að allur ágreiningur yrði lagður til hliðar. „Við féllumst í faðma og héldum lengi utan um hvor annan. Þetta var vilji okkar beggja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.