Bíó og sjónvarp

Ný X-Files kvikmynd væntanleg

David Duchovny
David Duchovny

Ný X-Files kvikmynd sem mun byggja á X-Files sjónvarpsþáttunum vinsælu er væntanleg. David Duchovny, annar aðalleikari þáttanna, hefur greint frá því að hann muni fá handrit að myndinni afhent í næstu viku. Duchovny og mótleikkonan Gillian Anderson munu bæði leika í myndinni og fara með hlutverk einkaspæjaranna Mulders og Scully.

Handritið að myndinni er skrifað af þeim Cris Carter og Frank Spotnitz sem einnig gerðu handritið að fyrstu myndinni fyrir um áratug síðan. Spennuþættirnir sem myndirnar byggja á gengu á árunum 1993-2002. Þeir hlutu þrisvar Golden Globe verðlaunin fyrir bestu sjónvarpsþættina.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×