Tónlist

Stórtónleikar fyrir austan

Áskell Heiðar heldur stórtónleika á Borgarfirði eystra. Tvö systkini hans koma fram á tónleikunum.
Áskell Heiðar heldur stórtónleika á Borgarfirði eystra. Tvö systkini hans koma fram á tónleikunum.

„Við stefnum að sjálfsögðu að því að fylla húsið enda er þetta metnaðarfullt prógramm," segir Áskell Heiðar Ásgeirsson sem stendur fyrir tónleikum á Borgarfirði eystri 28. júlí næstkomandi.

Á tónleikunum verður Magni Ásgeirsson í aðalhlutverki ásamt Megasi og meðlimum Hjálma. Auk þeirra koma fram Lay Low, Jónas Sigurðsson og Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir sem er heimamanneskja sem verið hefur í söngnámi í Danmörku. Svo skemmtilega vill til að Aldís Fjóla og Magni eru bæði systkin tónleikahaldarans Áskels Heiðars.



Þetta er þriðja árið í röð sem stórtónleikar eru haldnir í gömlu bræðslunni á Borgarfirði eystra helgina fyrir verslunarmannahelgi. Það var Emilía Torrini sem reið á vaðið fyrir tveimur árum og í fyrra sneri hún aftur en þá með skosku hljómsveitina Belle & Sebastian með í för.



Áskell Heiðar er ánægður með dagskrá tónleikanna í ár. „Já, heldur betur. Þetta er það ferskasta í íslenskri tónlist í dag. Magni verður með efni af nýju plötunni sinni og Megas líka. Lay Low er auðvitað búin að slá í gegn og Jónas gaf út áhugaverða plötu fyrir síðustu jól, hann kemur með hljómsveit með sér frá Danmörku. Þetta verður mjög flott."

Miðasala á tónleikana er hafin á Miði.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×