Tónlist

Innipúkinn á nýjum tónleikastað

Bjössi Borko skipuleggur Innipúkahátíðina um verslunarmannahelgina.
Bjössi Borko skipuleggur Innipúkahátíðina um verslunarmannahelgina.

„Planið er að hafa þetta minna í sniðum en síðustu ár. Ná kósí stemningu og hafa það huggulegt frekar en að hafa þetta eitthvert stórt festival,“ segir Björn Borko Kristjánsson, einn skipuleggjenda tónlistarhátíðarinnar Innipúkans, sem verður haldin í Reykjavík um verslunarmannahelgina.

Innipúkinn verður haldinn á nýja tónleikastaðnum Organ sem mun opna síðar í þessum mánuði. Organ er staðsettur í portinu fyrir aftan Gauk á Stöng. Þar var áður hinn skuggalegi Rökkurbar en búið er að rífa úr húsinu mest allt innvolsið, gjörbreyta staðnum og setja inn ný innyfli.

„Þetta er mjög flottur staður, akkúrat tónleikastaðurinn sem hefur vantað í Reykjavík,“ segir Björn. Staðurinn rúmar um 300 manns og tónleikadagskráin verður bæði á laugardag og sunnudag.

Ákvörðunin um að halda hátíðina í ár var tekin í gær og því sagði Björn að enn sem komið er væru engar hljómsveitir komnar á hreint. Það er þó ákveðið að hafa einungis íslenskar hljómsveitir og þau eru byrjuð að hringja í hljómsveitir á óskalistanum. Ásamt Birni standa að hátíðinni upprunalegu innipúkarnir og Skakkamanage-hjónin Berglind og Svavar Pétur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×