Bíó og sjónvarp

Gerir pitsurnar sjálfur

Bjarni Snæbjörnsson fer allar sínar ferðir á tvíhjólsfáknum.
Bjarni Snæbjörnsson fer allar sínar ferðir á tvíhjólsfáknum. MYND/Anton

Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Bjarni Snæbjörnsson sem situr fyrir svörum.

Aldur: 28 ára.

Hverjum er það að kenna að þú fórst í leiklist? Stórfurðulegum aðstæðum og góðu fólki í kringum mig.

Besta æskuminningin? Að leika úti í móum alla daga, heilu sumrin, á Tálknafirði.

Ef ekki leikari hvað þá? Dansari eða ljósmyndari.

Þú sérð gamla konu missa 5000 kall. Hvað gerir þú? Ég hleyp á eftir henni og rétti henni hann aftur.

Sáttur við nýju ríkisstjórnina? Hún hefði getað verið verri en líka betri.

Hvar er best að vera? Með manninum mínum.

Myndir þú koma nakinn fram? Ef það þjónaði fullkomlega listrænum tilgangi.

Hefur þú kysst einhvern af sama kyni? Ég vil ekkert kannast við það.

Versta starf sem þú hefur unnið? Að selja tryggingar í símasölu.

Hvernig bíl áttu? Tvíhjólsfák.

Ef þú værir einn í heiminum, hvað myndir þú gera? Láta mér leiðast.

Hvar pantar þú pitsuna þína? Ég geri hana sjálfur.

Hver er besta vídeóleigan? Ríkið á Snorrabraut, þó ég eigi nú nokkrar skuldir þar.

Þjóðleikhúsið eða Borgarleikhúsið? Borgarleikhúsið.

Hvernig týpa ertu? Náttúrubarn með leiftrandi húmor og óstöðvandi munn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.