Bíó og sjónvarp

Tékkar mjög hrifnir af Mýrinni

Gagnrýnandi Variety segir Mýrina vera fína mynd en vefsíðan blisty.cz hrósar henni í hástert.
Gagnrýnandi Variety segir Mýrina vera fína mynd en vefsíðan blisty.cz hrósar henni í hástert.

Gagnrýnandi kvikmyndabiblíunnar Variety fer fögrum orðum um kvikmyndina Mýrina eftir Baltasar Kormák en hún var frumsýnd á Karlovy Vary-kvikmyndahátíðinni í Tékklandi á sunnudaginn. Segir Eddie Crockrell að myndin eigi eflaust eftir að vekja mikla athygli, hún höfði til margra og eigi vafalítið eftir að gera góða hluti á kvikmyndahátíðum úti um allan heim. Þá hrósar hann sérstaklega tæknilegu hliðinni.



Tékkneska vefsíðan blisty.cz sparar hins vegar ekki stóru orðin og segir þetta vera eina bestu mynd leikstjórans Baltasars. Hann sýni einstaka hæfileika til að blanda saman lífi, listum og skemmtun í eina heild sem sé hreint út sagt frábær. Baltasar er hlaðinn lofi í gagnrýninni og Mýrin fær fullt hús stiga. Hún er sögð uppfylla öll þau skilyrði sem breskar sakamálamyndir setji og það sé í raun sorglegt hversu lítið sjáist til hreinræktaðra sakamálamynda á borð við Mýrina.



Mýrin sló eftirminnilega í gegn hér á landi og sló gjörsamlega öll met í aðsókn. Myndin segir frá rannsóknarlögreglumanninum Erlendi sem rannsakar dularfullt morð á barnaníðingi. Með aðalhlutverkin fara þau Ingvar E. Sigurðsson, Atli Rafn Sigurðarson og Ágústa Eva Erlendsdóttir. Myndin er byggð á samnefndri bók Arnaldar Indriðarsonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×