Bíó og sjónvarp

Enn neistar milli Leo og Kate

Þessi mynd var tekin frá tökustað Revolutionary Road og þykir sína að það var engin tilviljun að þau Leo og Kate náðu eins vel saman í Titanic og raun bar vitni.
Þessi mynd var tekin frá tökustað Revolutionary Road og þykir sína að það var engin tilviljun að þau Leo og Kate náðu eins vel saman í Titanic og raun bar vitni.

Innanbúðarmenn á tökustað kvikmyndarinnar Revolutionary Road segja að samband Leonardo DiCaprio og Kate Winslet fyrir framan myndavélarnar sé engu síðra en það sem blasti við áhorfendum í vinsælustu kvikmynd allra tíma, Titanic, sem sýnd var fyrir réttum áratug. Leo og Kate leika elskendur í hinni nýju mynd og neistar á milli þeirra sem aldrei fyrr.



Leo og Kate hafa haldið góðu sambandi síðan þau léku í Titanic en þar áttu þau í stuttu en eldheitu ástarsambandi á hinu sögufræga skipi. Samleikur þeirra þar þótti með besta móti og laus við alla tilgerð. Leo er tíður gestur á heimili Kate og Sam Mendes, eiginmanns hennar, en hann leikstýrir einmitt Revolutionary Road og passar væntanlega vel upp á að neistinn á milli DeCaprio og sinnar heittelskuðu kvikni alls ekki utan hvíta tjaldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.