Bíó og sjónvarp

Kaupi fötin þar sem þau eru flott

Dýrkar Michael Bolton.
Dýrkar Michael Bolton. Fréttablaðið/Hörður

Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Kristín Þóra Haraldsdóttir sem situr fyrir svörum.

Aldur: 25 ára

Draumahlutverkið? „Móðurhlutverkið.“

Besta æskuminningin? „Sitjandi við baðvaskinn að horfa á ömmu mála sig.“



Ef ekki leikari hvað þá? „Prestur, hjúkka, lögfræðingur... leikari getur fengið að vera þetta allt í smástund.“



Sátt við nýju ríkisstjórnina? „Mjög sátt.“

Hvar er best að vera? „Í sveitinni.“



Myndirðu koma nakin fram? „Seinni tíma spurning.“

Hvers getur þú síst verið án? „Æðri máttar.“

Hefur þú neytt fíkniefna? „Er sykur fíkniefni?“

Hvernig bíl áttu? „Stend í kaupum á bíl, Rauður PEUGOT 307, stolt mitt og yndi.“

Hvar kaupir þú fötin þín? „Þar sem þau eru flott.“

Ef þú værir síamstvíburi, hver ætti að vera fastur við þig? „Michael Bolton hiklaust.“

Ef þú værir ein í heiminum, hvað myndir þú gera? „Senda Palla SMS: „Hvar ertu?““

Hvað þarf mörg hrísgrjón til að mynda hrúgu? „Þrjú, svo hægt væri að mynda meirihluta.“

Hvar er besta vídeóleigan? „Aðalvídeóleigan, og líka heima hjá Söru og Sigrúnu bekkjasystrum mínum.“

Hvernig týpa ertu? „O mínus.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×